Nú hefur Sportþrenna fengið nýtt útlit og meira af omega-3. Sportþrenna er ætluð þeim sem stunda líkamsrækt og íþróttir af miklu kappi. Hún inniheldur vítamín og steinefni sem vernda gegn oxunarálagi.
Fjölvítamíntaflan inniheldur: Vítamín, steinefni, maltódextrín, bindiefni (örkristallaður sellulósi), grænt te, kekkjavarnarefni (steriksýra, kísildíoxíð, magnesíumsterat), akasíugúmmí, húðunarefni (HPMC), rakaefni (glýseról). Ráðlagður neysluskammtur 1 tafla á dag. L-Karnitíntaflan inniheldur: L-Karnitín, umfangsaukar (kalsíumkarbónat), bindiefni (örkristallaður sellulósi, hýdroxýprópýl sellulósi), kekkja-varnarefni (kísildíoxíð, magnesíumsterat), húðunarefni (HPMC), rakaefni (glýseról). Ráðlagður neysluskammtur 2 töflur á dag. Lýsishylkið inniheldur: 1000 mg omega-3 fiskiolía (etýlesterar), gelatín, rakaefni (glýseról), vatn, þráavarnarefni (náttúruleg tókóferól). Ráðlagður neysluskammtur 1 hylki á dag.